17.08.26 - 20:32
Ívan Guðjón Baldursson
Logi lék allan leikinn - Misheppnuð endurkoma Sönderjyske

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: SönderjyskE

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Logi Tómasson var í byrjunarliði Samsunspor og lék allan leikinn í sex marka jafntefli í fyrstu umferð nýs tímabils í efstu deild í Tyrklandi.
Samsunspor tók á móti Göztepe og skiptust liðin á að taka forystuna en lokatölur urðu 3-3.
Í danska boltanum lék Brynjar Ingi Bjarnason allan leikinn í varnarlínu Sönderjyske sem lenti þremur mörkum undir í fyrri hálfleik gegn Bröndby.
Daníel Leó Grétarsson kom inn af bekknum í hálfleik og skánaði leikur Sönderjyske til muna. Íslendingaliðið minnkaði muninn niður í eitt mark en tókst ekki að gera jöfnunarmarkið, svo lokatölur urðu 3-2.
Sönderjyske er aðeins með eitt stig eftir fjórar umferðir. Bröndby er með tíu stig.
Samsunspor 3 - 3 Göztepe
Bröndby 3 - 2 Sönderjyske