Rétt í þessu var verið að draga í fjórðu umferð enska deildabikarsins.
Þriðja umferðin fer fram í næstu viku og þar mæta stóru liðin til leiks. Liverpool heimsækir Lincoln, Manchester City fær Bournemouth í heimsókn, Manchester United mætir Luton og Leicester og Arsenal mætast svo eitthvað sé nefnt.
Önnur umferðin kláraðist í kvöld og nú er ljóst hvaða lið gætu mæst í fjórðu umferð bikarins. Dráttinn má sjá hér fyrir neðan.
Drátturinn í fjórðu umferð:
Lincoln/Liverpool - Leicester /Arsenal Millwall/Burnley - Manchester City/Bournemouth
WBA/Brentford - Fulham/Sheffield Wednesday
Fleetwood Town/Everton - West Ham/Hull City
Bristol City/Aston Villa - Stoke City/Gillingham
Leyton Orient/Tottenham Hotspur - Chelsea/Barnsley
Newport County/Watford - Morecambe/Newcastle
Preston/Brighton - Luton/Manchester United
Athugasemdir