Íslenski landsliðsmaðurinn Hólmar Örn Eyjólfsson er á leið til Rosenborg í Noregi á nýjan leik. 433.is greindi frá þessu í dag.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net mun Hómar skrifa undir hjá Rosenborg í dag.
Hólmar spilaði með Rosenborg frá 2014 til 2017 við góðan orðstír en hann varð tvívegis norskur meistari með félaginu.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net mun Hómar skrifa undir hjá Rosenborg í dag.
Hólmar spilaði með Rosenborg frá 2014 til 2017 við góðan orðstír en hann varð tvívegis norskur meistari með félaginu.
Hann fór þaðan til Ísrael og síðan til Levski Sofia í Búlgaríu.
Levski Sofia hefur átt í vandræðum með að borga laun og samkvæmt heimildum 433.is fer hann frítt til Rosenborg.
Athugasemdir