Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 17. september 2021 19:27
Victor Pálsson
Raiola: Möguleiki að Pogba fari aftur til Juventus
Mynd: Getty Images
Það er möguleiki að Paul Pogba snúi aftur til Juventus þar sem hann spilaði við góðan orðstír frá 2012 til ársins 2016.

Þetta segir umboðsmaður leikmannsins, Mino Raiola, en Pogba verður samningslaus næsta sumar.

Pogba er á mála hjá Manchester United og hefur leikið þar undanfarin fimm ár og er mikilvægur hlekkur í liðinu.

Frakkinn er oft orðaður við brottför frá Old Trafford og miðað við orð Raiola er ekki víst að hann framlengi í Manchester.

„Paul Pogba verður samningslaus í júní svo við munum ræða við Man Utd og sjá hvað gerist," sagði Raiola.

„Túrin á enn stað í hans hjarta. Það er möguleiki að Pogba snúi aftur til Juventus en það er líka undir Juventus komið."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner