Fotbolti.net
17.09.23 - 13:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Caicedo ekki með vegna meiðsla

Caicedo ekki með vegna meiðsla
Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea er þessa stundina í heimsókn á Vitality vellinum og tekur á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni.

Mauricio Pochettino stjóri Chelsea gerði tvær breytingar á liðinu sem tapaði gegn Nottingham Forest í síðustu umferð fyrir landsleikjahlé.

Ben Chilwell er á bekknum en Moises Caicedo er ekki í leikmannahópnum þar sem hann meiddist í landsleikjahléinu þar sem hann spilaði með landsliði Ekvador.

„Caicedo kom til baka með smá hnémeiðsli. Við þurfum að skoða hann betur næstu daga en hann var ekki klár í dag," sagði Pochettino fyrir leikinn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.