17.10.26 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ívar Ingimars ráðinn til Fjölnis (Staðfest)

Mynd: Fjölnir

Mynd: Fjölnir
Ívar Ingimarsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Fjölni. Gunnar Már Guðmundsson er aðalþjálfari 2. deildarliðsins.
Ívar á glæsilegan feril að baki sem fótboltamaður eftir að hafa leikið fyrir Brentford, Wolves, Brighton, Reading og Ipswich á sínum tíma í enska boltanum. Hann lék 72 leiki með Reading í ensku úrvalsdeildinni á árunum 2006 til 2008 og var fyrirliði félagsins.
Hann lék 30 A-landsleiki á ferlinum eftir að hafa verið lykilmaður upp yngri landsliðin og lagði skóna á hilluna 2012.
Ívar hefur reynslu af þjálfun meistaraflokks kvenna hjá KR og 2. flokks hjá HK.
„Við bjóðum Ívar hjartanlega velkominn í Grafarvoginn og hlökkum til samstarfsins!" segir í tilkynningu frá Fjölni, sem leikur í 2. deild karla. Liðið endaði síðustu leiktíð um miðja deild, með 30 stig úr 22 leikjum.