Fotbolti.net
18.01.23 - 12:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Aðeins tvennt sem getur sannfært Kane um að vera áfram

Harry Kane.

Harry Kane.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er aðeins tvennt sem getur freistað Harry Kane að halda áfram að spila fyrir Tottenham á næsta tímabili.
Kane, sem er 29 ára að aldri, hefur allan sinn feril leikið með Tottenham og verið magnaður þjónn fyrir félagið.

Tottenham hefur hins vegar ekki náð neinum sérstökum árangri sem lið á tíma Kane hjá félaginu. Félagið hefur ekki unnið einn einasta titil á þeim tíma.

Það er ljóst að stærstu félög Evrópu hafa áhuga á honum fyrir rétt verð en samkvæmt frétt Telegraph er aðeins tvennt sem getur freistað Kane að vera áfram hjá félaginu á næsta tímabili.

Það er annað hvort það að komast í Meistaradeildina eða að vinna titil. Tottenham er sem stendur í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar, fimm stigum á eftir Manchester United sem er í fjórða sæti.

Spurs er þá enn í Meistaradeildinni og í FA-bikarnum.

Samningur Kane við Tottenham rennur út eftir næstu leiktíð. Ef hann ákveður að skrifa ekki undir nýjan samning þá getur hann farið á frjálsri sölu sumarið 2024.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.