Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 18. febrúar 2020 09:43
Magnús Már Einarsson
Carragher og Keane bera saman 1999 lið United og 2020 lið Liverpool
Roy Keane
Roy Keane
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool, og Roy Keane, fyrrum leikmaður Manchester United, mættu í stúdíó hjá Sky í gær og báru saman lið Manchester United sem vann þrennuna árið 1999 og lið Liverpool sem er með 25 stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

Undanfarnar vikur hafa lesendur á vefsíðu Sky Sports valið sitt draumalið úr þessum tveimur liðum og Carragher og Roy Keane gerðu það sama í gær.

Keane var nokkrum sinnum hneykslaður á Carragher, sérstaklega þegar Ryan Giggs komst ekki í liðið.

Áhugaverð umræða var um hægri bakverðina Trent Alexander-Arnold og Gary Neville sem og fremstu leikmennina.

Hér að neðan má sjá þetta skemmtilega innslag.


Athugasemdir
banner
banner
banner