Fotbolti.net
15.10.26 - 18:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Evrópudeildin: Dramatískur sigur Sunderland - Leverkusen á toppnum

Patrick Schick

Patrick Schick

Canon

Mynd: EPA

Leverkusen er á toppi Evrópudeildarinnar eftir öruggan sigur á Lech Poznan í kvöld.

Patrick Schick kom inn á sem varamaður fyrir Martin Terrier í fyrri hálfleik. Schick kom Leverkusen yfir með marki úr vítaspyrnu og Malik Tilman bætti öðru markinu við áður en Schick skoraði úr annarri vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks.
Það var síðan Ibrahim Maza sem innsiglaði sigurinn undir lokin.

Það var dramatískur sigur hjá Sunderland gegn portúgalska B-deildarliðinu Torrerense á útivelli. Portúgalska liðið komst yfir og var með forystuna í hálfleik.

Jules Ahoka jafnaði metin og það var síðan Noah Sadiki sem tryggði Sunderland sigurinn með marki þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.

Crystal Palace fór til Frakklands og tapaði gegn Lyon. Staðan var 2-0 í hálfleik fyrir heimamenn. Yeremy Pina minnaði muninn strax í upphafi seinni hálfleiks en Pavel Sulc skoraði þriðja mark Lyon áður en Daichi Kamada klóraði í bakkann.

Orri Steinn Óskarsson kom inn á í uppbótatíma þegar Real Sociedad gerði jafntefli gegn Royale Union. Hann hefði getað skorað sigurmarkið í blálokin en var ekki nógu ákveðinn.

Það var skot á markið og markvörður Union komst í boltann. Boltinn var að rúlla í netið en varnarmaður Union bjargaði á síðustu stundu. Orri var nálægt þessu en gerði ekki atlögu að boltanum.

Þá vann AC Milan öruggan sigur á RB Salzburg þar sem Alphadjo Cisse skoraði þrennu.

Öll úrslit kvöldsins

Sparta Praha 1 - 1 Lillestrom
1-0 Josimar Alcocer ('56 )
1-1 Thomas Olsen ('90 )

AZ 2 - 1 Hapoel Beer Sheva
1-0 Peer Koopmeiners ('49 )
1-1 Amankwah Forson ('55 )
2-1 Mexx Meerdink ('77 , víti)

Lech 0 - 4 Bayer
0-1 Patrik Schick ('29 , víti)
0-2 Malik Tillman ('32 )
0-3 Patrik Schick ('41 , víti)
0-4 Ibrahim Maza ('89 )

Celje 0 - 3 Omonia
0-1 Jaden Montnor ('16 )
0-2 Muamer Tankovic ('59 )
0-3 Senou Coulibaly ('84 )

Lyon 3 - 2 Crystal Palace
1-0 Corentin Tolisso ('8 )
2-0 Ernest Nuamah ('45 )
2-1 Yeremy Pino ('50 )
3-1 Pavel Sulc ('76 )
3-2 Daichi Kamada ('81 )

Salzburg 0 - 4 Milan
0-1 Alphadjo Cisse ('15 )
0-2 Alphadjo Cisse ('32 )
0-3 Alphadjo Cisse ('49 )
0-4 Goncalo Ramos ('72 )
Rautt spjald: Filippo Terracciano, Milan ('83)

St. Gilloise 1 - 1 Real Sociedad
0-1 Benat Turrientes ('46 )
1-1 Sekou Keita ('88 )

Torreense 1 - 2 Sunderland
1-0 Volnei ('37 )
1-1 Jules Ahoka ('67 )
1-2 Noah Sadiki ('90 )
Noah Sadiki

Noah Sadiki

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.