Fotbolti.net
15.10.26 - 17:50
Kári Snorrason

17 ára dómarinn í Bestu deildinni

Fékk fyrst áhuga á dómgæslu 13 ára gamall.

Fékk fyrst áhuga á dómgæslu 13 ára gamall.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þráinn Jón Elmarsson er aðeins 17 ára gamall en hefur þegar haslað sér völl í dómgæslu í Bestu deild karla, þar sem hann er yngsti dómarinn um þessar mundir.

Þráinn, sem er fæddur árið 2009 og er nemandi í Verzlunarskólanum, hefur verið í dómgæslu í rúm þrjú ár. Á núverandi tímabili hefur hann verið aðstoðardómari á fjölda leikja í Lengjudeildinni og fjórum í Bestu deildinni.

Fótbolti.net ræddi við þennan efnilega dómara.
Sneri sér að dómgæslunni fimmtán ára
„Áhuginn byrjaði svona 2022, þegar ég var 13 ára, þá horfði ég á fullt af leikjum og mér fannst alltaf gaman að horfa á dómarana. Ég hafði sterka skoðun á ákvörðununum og hvernig átti að dæma leikina. Þegar ég var að spila sjálfur líka þá hafði ég alltaf einhverja skoðun á dómgæslunni,“ segir Þráinn og heldur áfram.

„Ég byrjaði síðan að dæma í maí 2023. Síðan byrjaði ég fyrir KSÍ minnir mig í mars 2024 síðan og hef verið að vera að gera það síðan þá.“

Þráinn lék í yngri flokkum með FH en hætti fimmtán ára. „Þegar ég fattaði að ég myndi pottþétt ekki komast lengra ákvað ég að setja fulla einbeitingu á dómgæsluna.“

Hraður tröppugangur
Þráinn dæmdi fyrstu leiki sína í meistaraflokki fyrir tveimur árum og var þá mest í 2. deild kvenna og 4. deild karla, ári síðar hafði hann unnið sig upp í 2. deild karla.

Nú í sumar hefur Þráinn mest verið á línunni í Lengjudeildinni og Bestu deildinni.

Hefur það komið þér á óvart hversu hratt þú hefur farið upp stigann?
„Já, það hefur komið mér alveg smá á óvart. En það er samt mikil vinna sem liggur að baki,“ segir Þráinn.

Kemur síðar í ljós
Hingað til hefur Þráinn aðeins verið aðstoðardómari í meistaraflokksleikjum. Aðspurður um hvort að hann stefni að því að verða aðaldómari segir hann það óvíst.

„Ég hef ekki tekið ákvörðun með það. Ég ætla bara svona að sjá með tímanum hvað gerist. Markmiðið er auðvitað bara að halda áfram og reyna að komast sem lengst og maður getur í þessu.“

Eru einhverjir sérstakir dómarar sem þú horfir upp til?
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á Vilhjálmi Alvari og síðan finnst mér Guðmundur Ingi (Bjarnason) mjög flottur aðstoðardómari,“ segir Þráinn.

Hæðin hjálpar
Þar sem þú ert töluvert yngri en flestir dómarar, færðu að finna meira fyrir því?

„Nei, mér finnst það ekki alla vega sjálfur sko. Ég er hávaxinn og ég held að það hjálpi mér líka alveg rosalega. En ég alla vega finn ekki sjálfur neitt svona fyrir því,“ segir Þráinn að lokum en hann er heilir 197 sentimetrar á hæð.
Var síðast á hliðarlínunni í viðureign Víkings og ÍA síðastliðinn sunnudag.

Var síðast á hliðarlínunni í viðureign Víkings og ÍA síðastliðinn sunnudag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Verið aðstoðardómari á fjórum Bestu deildar leikjum í ár.

Verið aðstoðardómari á fjórum Bestu deildar leikjum í ár.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heilir 197 sentimetrar.

Heilir 197 sentimetrar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Villi Alvar í uppáhaldi.

Villi Alvar í uppáhaldi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.