15.10.26 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fyrsti heimasigurinn í Evrópukeppni - „Þetta var Bournemouth frammistaða"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Bournemouth spilaði sinn fyrsta heimaleik í sögu félagsins í Evrópukeppi í kvöld og vann 3-0 sigur á Strum Graz í Evrópudeildinni.
Adam Smith, fyrirliði liðsins, gekk í raðir Bournemouth fyrir 16 árum þegar liðið spilaði í C-deildinni.

„Það kom loksins að þessu. Stuðningsmennirnir og leikmennirnir voru klárir og við erum ánægðir með frammistöðuna." sagði Smith.
Bournemouth hefur verið í brasi í ensku deildinni en liðið er aðeins með þrjú stig eftir sex umferðir. Liðið steinlá 5-1 gegn Chelsea um síðustu helgi.
„Það voru mjög mikil vonbrigði um helgina. Við brugðumst okkur sem leikmenn, við vitum það. Við spjölluðum saman og fengum viðbrögð í dag. Þetta var Bournemouth frammistaða en vikan er ekki búin. Við eigum erfiðan leik fyrir höndum gegn Sunderland og við þurfum að fá þrjú stig."