Fotbolti.net
15.10.26 - 14:53
Elvar Geir Magnússon

Fernandez-Pardo þarf tíma til að aðlagast

Matias Fernandez-Pardo.

Matias Fernandez-Pardo.

Canon

Mynd: Newcastle

Belgíski sóknarmaðurinn Matias Fernandez-Pardo hefur ekki náð sér á strik með Newcastle en hann kom til félagsins frá Lille í Frakklandi í sumar.

„Ungir leikmenn sem eru að koma í fyrsta sinn í ensku úrvalsdeildina þurfa aðlögunartíma. Það þarf að sýna þolinmæði," segir Matthias Jaissle, stjóri Newcastle, um þennan 21 árs leikmann.

„Auðvitað höfum við ekki mikinn tíma, svo þróunin og aðlögunin þarf að vera eins hröð og mögulegt er. En ég er ánægður að við sjáum hann nú þegar vera að koma sér í hættulegar stöður og skapa færi. Það vantar bara mark núna til að gefa honum sjálfstraust. Hann er frábær leikmaður sem getur náð langt."
Biður stuðningsmenn afsökunar - „Erum pirraðir"
TENGT EFNI

Biður stuðningsmenn afsökunar - „Erum pirraðir"

Newcastle fær Aston Villa í heimsókn á laugardaginn. Jaissle segist vonast til þess að Bazoumana Toure, sem fór meiddur af velli í tapinu gegn Coventry á mánudag, geti verið í hóp. Anthony Elanga er enn á meiðslalistanum en gæti snúið aftur til æfinga í næstu viku.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.