Fotbolti.net
15.10.26 - 15:48
Elvar Geir Magnússon

Leikur Keflavíkur og KR orðinn hádegisleikur

Stefan Alexander Ljubicic hefur verið gríðarlega öflugur með Keflavík.

Stefan Alexander Ljubicic hefur verið gríðarlega öflugur með Keflavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leik Keflavíkur og KR í efri hluta Bestu deildar karla sem fram fer á laugardag hefur verið flýtt um tvo klukkutíma.

Leikurinn átti upphaflega að hefjast klukkan 14:00 en mun hefjast klukkan 12:00 laugardaginn 17. október.
Óvissa um fleiri leiki helgarinnar vegna veðurs - „Auðvitað allt í hættu“
TENGT EFNI

Óvissa um fleiri leiki helgarinnar vegna veðurs - „Auðvitað allt í hættu“

Veðurspá helgarinnar hefur sett strik í reikninginn hjá Bestu deildinni þar sem tveir leikir höfðu verið færðir fram á föstudag. Gert er ráð fyrir hvassviðri og rigningu um helgina.

„Við samþykktum sameiginlegar óskir félaganna í þremur leikjum. Ég þykist vita að önnur félög fylgist með stöðu mála. Það er ekkert fast í hendi með hvað verður, menn eru bara að skoða sín mál,“ sagði Birkir Sveinsson hjá KSÍ við Fótbolta.net.

Svona er því dagskráin eins og sakir standa:

föstudagur 16. október
17:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
19:15 Breiðablik-Víkingur R. (Eikarvöllurinn)

laugardagur 17. október
12:00 Keflavík-KR (HS Orku völlurinn)
14:00 Þór-Stjarnan (VÍS völlurinn)
14:00 Valur-KA (N1-völlurinn Hlíðarenda)

sunnudagur 18. október
19:15 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Leikur Keflavíkur og KR orðinn hádegisleikur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Víkingur R.25+5060
2KR25+2950
3Fram25+1146
4Breiðablik25+336
5ÍA25-334
6Keflavík25-1029

Besta karla - Neðri hluti

#LiðLmunStig
1Valur25-531
2Stjarnan25-1231
3FH25-430
4KA25-1026
5Þór25-3324
6ÍBV25-1619
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.