Fotbolti.net
16.10.26 - 08:00
Víðir Sigurðsson

Leikjahæsti þjálfarinn hættur: Hungrið og ástríðan ekki lengur fyrir hendi

Bjarni Jóhannsson lauk þjálfaraferlinum á Selfossi þar sem lið hans vann Fótbolta.net-bikarinn árið 2024 ásamt því að fara upp í 1. deild.

Bjarni Jóhannsson lauk þjálfaraferlinum á Selfossi þar sem lið hans vann Fótbolta.net-bikarinn árið 2024 ásamt því að fara upp í 1. deild.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Jóhannsson, leikjahæsti knattspyrnuþjálfari Íslandssögunnar, hefur ákveðið að draga sig endanlega í hlé frá þjálfun eftir 43 ára feril, og þar af 37 tímabil sem þjálfari í meistaraflokki.

Bjarni tók sér frí frá þjálfun á þessu ári en hann var þjálfari karlaliðs Selfyssinga tvö síðustu tímabilin, 2024 og 2025, og sagði við Fótbolta.net að hann hefði komist að þeirri niðurstöðu að nú væri rétti tíminn til að binda endi á þennan kafla í lífinu.
Gæsahúð að hugsa til haustsins 1998 - „Heimkoman var algjörlega sturluð"
TENGT EFNI

Gæsahúð að hugsa til haustsins 1998 - „Heimkoman var algjörlega sturluð"

„Auðvitað hefur aldurinn sitt að segja, og þegar ég lauk tímabilinu á Selfossi í fyrrahaust fann ég að ástríðan og hungrið voru ekki lengur fyrir hendi. Ég hafði að sjálfsögðu gert mér grein fyrir því nokkrum árum áður að það færi að koma að því að ég myndi hætta þessu og hét þá sjálfum mér því að þegar hungrið í þjálfunina væri farið, þá myndi ég hætta.

Ég tengi þetta samt ekki við það að hafa fallið með lið í fyrsta skipti á ferlinum þegar ég þjálfaði Selfoss. Mér stóð til boða að þjálfa lengur en hugur og hjarta sögðu að ástríðan væri ekki fyrir hendi. Ég hef melt þetta í rólegheitum síðan og þetta er endanlega niðurstaðan hjá mér núna.

Ég hef sinnt þjálfuninni sem hlutastarfi allan minn feril, með minni vinnu sem kennari lengst af, og nú er komið að endapunktinum, það er einfalt mál,“ sagði Bjarni, sem kvaðst hafa fengið fyrirspurnir varðandi þjálfun á næsta tímabili en vísað öllu frá sér.

Leikirnir voru 666 og næsti með 555
Hann stýrði liðum sem aðalþjálfari á Íslandsmóti í samtals 666 leikjum, frá árinu 1983, þar af 256 í efstu deild karla, og vann Íslandsmeistaratitilinn tvívegis með ÍBV ásamt því að verða bikarmeistari með bæði ÍBV og Fylki. Þá stýrði Bjarni liðum sjö sinnum upp um deild á ferlinum. Til viðbótar starfaði Bjarni fjögur ár sem aðstoðarþjálfari, eitt ár í Noregi, eitt ár hjá Fram og tvö ár með karlalandsliði Íslands.

Bjarni er eini Íslendingurinn sem hefur stýrt liði í meira en 600 leikjum á Íslandsmóti, en þar fyrir utan eru bikarleikir, Evrópuleikir ásamt öðrum mótum þannig að heildarleikirnir á ferlinum nálgast þúsundið. Næsti maður er rúmlega 100 leikjum á eftir Bjarna en það er Ólafur Jóhannesson, sem einnig er hættur, en hann stýrði liðum í 555 leikjum á Íslandsmótinu.

Vill aðstoða landsbyggðina
„Ég veit að það verður tómarúm hjá mér á næstu árum, sérstaklega eftir að ég mun hætta í kennslunni næsta vor. En það er margt sem brennur á mér, sérstaklega gagnvart landsbyggðinni, og ég fór t.d. sem áhugamaður á ráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga á Akureyri á dögunum þar sem fjallað var um byggðaþróun. Mér finnst landsbyggðin vera í átthagafjötrum á svo margan hátt og að við ættum að geta gefið ungu fólki, í íþróttum sem öðrum sviðum, mikið fleiri tækifæri til að flytja út á land og starfa þar.

Þarna kom fram að 30 þúsund manns á aldrinum 18-34 ára af Reykjavíkursvæðinu væru samkvæmt könnun alveg til í að flytja út á land. En þá koma til þættir eins og atvinnustig, heilsugæsla, samgöngur og aðbúnaður fyrir börn og unglinga. Ég væri til í að koma að hugmyndavinnu á þessu sviði á næstu árum og hjálpa til við að búa til heilbrigt konsept á minni stöðum úti á landi,“ sagði Bjarni um hvernig hann hygðist haga lífinu eftir fótboltann.

Þjálfaði fyrst á Ísafirði
Bjarni er 68 ára gamall, fæddur og uppalinn í Neskaupstað, en hóf þjálfaraferilinn í meistaraflokki á Ísafirði árið 1983 þar sem hann stýrði kvennaliði ÍBÍ upp í efstu deild. Frá þeim tíma hefur Bjarni eingöngu þjálfað karlalið.

Bjarni lék sjálfur lengst með Þrótti í Neskaupstað, sem þá lék sex ár í röð í næstefstu deild, og spilaði síðan með ÍBÍ á Ísafirði og KA í efstu deild.

Hann fór á heimaslóðirnar árið 1985 og var spilandi þjálfari Þróttar í Neskaupstað í 2. deild (hét þá 3. deild) en var síðan spilandi aðstoðarþjálfari norska liðsins Askim árið 1986 þegar hann stundaði nám þar í landi.

Sauðárkrókur og Grindavík
Bjarni var síðan ráðinn þjálfari Tindastóls á Sauðárkróki árið 1987, fór með liðið upp í næstefstu deild í fyrstu tilraun og hélt því þar næstu þrjú árin. Árangur Tindastóls á þeim tíma er enn sá besti í sögu félagsins.

Bjarni fór þaðan til Grindavíkur og þjálfaði þar í tvö ár, 1991 og 1992, en á þeim tveimur árum var Grindavíkurliðið í fyrsta skipti í sögunni í toppbaráttu í næstefstu deild.

Árið 1993 var Bjarni aðstoðarþjálfari Fram í efstu deild, við hlið Ásgeirs Sigurvinssonar.

Hann tók við Fylki árið 1994, eftir að liðið féll úr efstu deild, og það var einu stigi frá því að komast þangað aftur.

Bjarni var ráðinn þjálfari Breiðabliks í efstu deild árið 1995, liðið endaði í áttunda sæti og Bjarni tók sér ársfrí frá þjálfun í kjölfarið.

Sigurganga í Eyjum og bikar í Árbæ
Hann var síðan ráðinn til ÍBV og stýrði liði Eyjamanna í þrjú ár með glæsilegum árangri. ÍBV varð Íslandsmeistari árið 1997, Íslands- og bikarmeistari árið 1998 og endaði í öðru sæti úrvalsdeildarinnar 1999. Liðið lék tíu Evrópuleiki undir stjórn Bjarna á þessum þremur árum, m.a. tvo gegn þýska stórliðinu Stuttgart.

Bjarni tók við Fylki á ný og náði á árinu 2000 besta árangrinum í sögu félagsins til þess tíma en Fylkir, sem þá var nýliði í úrvalsdeildinni, var hársbreidd frá Íslandsmeistaratitlinum og hafnaði í öðru sæti sem það hefur aðeins einu sinni leikið eftir. Árið eftir varð Fylkir bikarmeistari í fyrsta skiptið í sögunni, og lék jafnframt í fyrsta sinn í Evrópukeppni.

Þaðan fór Bjarni til Grindavíkur og var þar árin 2002 og 2003 en á fyrra tímabilinu jafnaði Grindavík sinn besta árangur í sögunni þegar liðið endaði í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar.

Bjarni tók við liði Breiðabliks á ný árið 2004, þegar liðið var í 1. deild, og það vann deildina árið 2005 með yfirburðum. Bjarni sagði af sér á miðju tímabilinu 2006.

Þá var hann jafnframt orðinn aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins, við hlið Eyjólfs Sverrissonar sem Bjarni hafði þjálfað hjá Tindastóli á árum áður, og gegndi því hlutverki árin 2006 og 2007.

Fimm ár í Garðabænum
Bjarni tók við liði Stjörnunnar árið 2008, í 1. deild, og fór með það upp í úrvalsdeildina í fyrstu tilraun. Þar sló liðið í gegn með frískum sóknarleik og festi sig vel í sessi með því að enda í fjórða og fimmta sæti árin 2011 og 2012. Þá komst Garðabæjarliðið jafnframt í bikarúrslit í fyrsta skipti árið 2012.

Bjarni fór þaðan til Akureyrar og þjálfaði KA í 1. deild frá 2013 en hætti þar störfum þegar sjö umferðum var ólokið af tímabilinu 2015.

Hann fór aftur til Vestmannaeyja og þjálfaði lið ÍBV í úrvalsdeildinni árið 2016 en hætti þegar sjö umferðum var ólokið.

Eftir ársfrí fór Bjarni aftur til Ísafjarðar og þjálfaði þar lið Vestra í þrjú ár, fór með það upp í 1. deild á öðru árinu, 2019, þar sem liðið endaði í sjöunda sæti undir hans stjórn árið 2020.

Bjarni tók síðan við liði Njarðvíkur í 2. deild og var þar í tvö ár, 2021 og 2022, og liðið vann deildina seinna árið.

Eftir eins árs hlé tók Bjarni við sínu síðasta liði, Selfossi, sem vann 2. deildina undir hans stjórn árið 2024 en náði ekki að halda sæti sínu í 1. deild árið eftir.
Bjarni Jóhannsson þjálfaði Vestra frá 2018 til 2020.

Bjarni Jóhannsson þjálfaði Vestra frá 2018 til 2020.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

ÍBV varð tvisvar Íslandsmeistari og einu sinni bikarmeistari undir stjórn Bjarna.

ÍBV varð tvisvar Íslandsmeistari og einu sinni bikarmeistari undir stjórn Bjarna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Bjarni þjálfaði Stjörnuna í fimm ár og kom Garðabæjarliðinu í sinn fyrsta bikarúrslitaleik.

Bjarni þjálfaði Stjörnuna í fimm ár og kom Garðabæjarliðinu í sinn fyrsta bikarúrslitaleik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Eyjólfur Sverrisson og Bjarni Jóhannsson voru saman með íslenska karlalandsliðið í tvö ár.

Eyjólfur Sverrisson og Bjarni Jóhannsson voru saman með íslenska karlalandsliðið í tvö ár.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni þjálfaði Breiðablik á árunum 2004 til 2006.

Bjarni þjálfaði Breiðablik á árunum 2004 til 2006.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Þrír þrautreyndir: Njáll Eiðsson (345 leikir sem þjálfari á Íslandsmóti), Bjarni Jóhannsson (666) og Ólafur Jóhannesson (555).

Þrír þrautreyndir: Njáll Eiðsson (345 leikir sem þjálfari á Íslandsmóti), Bjarni Jóhannsson (666) og Ólafur Jóhannesson (555).

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir vann sinn fyrsta stóra titil með Bjarna sem þjálfara árið 2001.

Fylkir vann sinn fyrsta stóra titil með Bjarna sem þjálfara árið 2001.

Canon

Mynd: Íslensk knattspyrna 2001

ÍBV vann þrjá stóra titla með Bjarna við stjórnvölinn árin 1997 og 1998.

ÍBV vann þrjá stóra titla með Bjarna við stjórnvölinn árin 1997 og 1998.

Canon

Mynd: Íslensk knattspyrna 1998

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.