Fotbolti.net
15.10.26 - 19:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Martínez biðst afsökunar og fær sekt

Martínez biðst afsökunar og fær sekt
Canon

Mynd: EPA

Man Utd hefur sektað Lisandro Martínez fyrir ummæli sem hann lét falla eftir 2-0 tap gegn Atletico í Meistaradeildinni á þriðjudaginn.

Hann gagnrýndi Jason Wilcox, yfirmann fótboltamála hjá Manchester United, harðlega fyrir metnaðarleysi og taldi félagið ekki hafa gert nóg til að styrkja leikmannahópinn í sumar.
Martínez líklega refsað fyrir viðtalið
TENGT EFNI

Martínez líklega refsað fyrir viðtalið

Hann sendi frá sér yfirlýsingu í dag eftir fund með stjórn félagsins og Michael Carrick.

„Það vita allir að ég sé tilfinningaríkur og ég lifi fyrir fótbolta af miklum krafti. Pirringurinn eftir tapið varð til þess að ég sagði mína skoðun á stað og tíma sem var sennilega ekki réttur og ég biðst afsökunar á því," segir Martínez meðal annars.

„Félagið er upp á sitt besta þegar við erum samstíga og ég geri mér grein fyrir að mín orð á þessu augnabliki hjálpuðu ekki til. Ég veit að allir hjá Manchester United eru að gera allt sem þeir geta til að ná sameiginlegu markmiði. Ná árangri sem þetta félag og stuðningsmenn eiga skilið."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.