Fotbolti.net
15.10.26 - 18:36
Kári Snorrason

Mattías Kjeld: Hann sagði mig vera með rangt hugarfar og að leikmenn vildu ekki hafa mig

Auglýsing
Keyptur til KR frá Gróttu.

Keyptur til KR frá Gróttu.

Canon

Mynd: KR

Mattías Kjeld var undir lok síðasta mánaðar tilkynntur sem nýr leikmaður KR.

Hann var keyptur í Vesturbæinn frá Gróttu þar sem hann hafði skorað tíu mörk í Lengjudeildinni og verið valinn efnilegasti leikmaður tímabilsins.

Fótbolti.net ræddi við Mattías fyrr í dag í tilefni skiptanna.
Vill fara tilbúinn út
„Eftir tímabil ákvað ég að taka næsta skref ferilsins. Ég ræddi við umboðsmanninn minn og við ákváðum að halda áfram á Íslandi, það var einhver áhugi erlendis frá held ég. Ekkert sem við tókum lengra samt, okkur langaði að ég yrði tilbúinn þegar ég færi út. KR var með það sem heillaði mig mest.

Þeir hafa sýnt það í gegnum tíðina að þeir hafa selt leikmenn tilbúna út og leikmennirnir haldið sér úti. Það er markmiðið mitt, mig langar ekki til þess að fara út og koma aftur heim. Nú er einbeitingin mín að vera í KR og standa mig þar. Þeir eru með góða blöndu að ná árangri og að spila ungum leikmönnum, það heillaði mig mest.“


Vildi vera áfram á Hlíðarenda
Mattías er uppalinn í Val en framlengdi ekki samning sinn við Hlíðarendafélagið síðasta vetur og fór hann til Gróttu síðasta vor.

Hvers vegna fórstu frá Val?
„Það er bara þannig að mig langaði að vera áfram í Val. Mér þykir mjög vænt um Val og það sem þeir hafa gert fyrir mig í gegnum tíðina, frá því að ég var í 8. flokki og upp í meistaraflokk hef ég lært mikið. Þeir hafa hjálpað mér að verða að þeim leikmanni sem ég er í dag,“ segir Mattías og heldur áfram.

„Ég var ekki sáttur við hvað ég spilaði lítið á undirbúningstímabilinu. Þá talaði ég við Bjarka umboðsmann um hvað ég ætti að gera. Þarna var ég ekki samningsbundinn Val. Ég var að fara á reynslur hér og þar og ekki klár á því hvort ég ætti að skrifa undir hjá Val og festast þar. Síðan koma Hemmi og Chris (Brazell) inn og stefnan er að yngja liðið og spila á uppöldum leikmönnum. Þá hugsaði ég að ég væri rétti maðurinn og mig langaði að vera áfram.

Þá þyrfti ég að vera samningsbundinn Val. Umboðsmaðurinn minn ræðir þá við þáverandi yfirmann knattspyrnumála (Gareth Owen) og hann segir um mig að ég sé ekki með nógu gott hugarfar til að verða fótboltamaður, leikmennirnir vilja ekki hafa mig áfram og eitthvað svoleiðis. Þá sagði hann (Bjarki umboðsmaður) takk fyrir þetta og við fundum lið sem tók vel á móti mér,“
segir Mattías.

Stjórn Vals baðst afsökunar
Mattías segir það hafa verið leiðinlegt að fá að heyra þessi skilaboð frá uppeldisfélaginu en segist ekki hafa neitt á móti félaginu í dag.

„Mér finnst ég hafa tæklað þetta vel og hef bara talað fallega um Val. Valur hefur verið besta lið Íslands í gegnum tíðina og þeir hafa hjálpað mér mikið. Ég fékk ekki að vita þetta fyrr en tímabilið var að klárast núna hjá Gróttu. Maður var súr. Ég átti mjög gott samtal við stjórn Vals eftir tímabil í ár og þeir báðust afsökunar. Þeir vildu meina að þetta hafi frekar verið stjórnin sem var á undan og óskuðu mér alls hins besta. Ég hef þannig séð ekkert á móti Val,“ segir Mattías að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Valinn efnilegasti leikmaður Lengjudeildarinnar.

Valinn efnilegasti leikmaður Lengjudeildarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vill fara tilbúinn út í atvinnumennsku.

Vill fara tilbúinn út í atvinnumennsku.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Uppalinn í Val.

Uppalinn í Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gareth Owen var yfirmaður fótboltamála hjá Val.

Gareth Owen var yfirmaður fótboltamála hjá Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.