Fotbolti.net
15.10.26 - 15:59
Elvar Geir Magnússon

Arnar um agabrotin: Undirbúningurinn fór til fjandans

Arnar Gunnlaugsson lýsir yfir miklum vonbrigðum með agabrot landsliðsmanna.

Arnar Gunnlaugsson lýsir yfir miklum vonbrigðum með agabrot landsliðsmanna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Mikil vonbrigði fyrir viðkomandi leikmenn að hafa ekki bara brugðist sjálfum sér, heldur líka brugðist mér, brugðist liðsfélögunum og þjóðinni líka," segir Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari í viðtali við Vísi.

Þar tjáir hann sig í fyrsta sinn um agabrot nokkurra leikmanna íslenska landsliðsins sem áttu sér stað í síðasta glugga. Fjallað hefur verið um að leikmenn hafi farið á pókerklúbb og fengið sér áfengi.
Agabrot innan íslenska landsliðshópsins í glugganum
TENGT EFNI

Agabrot innan íslenska landsliðshópsins í glugganum

Þetta gerðist á laugardagskvöldi, eftir leik gegn Búlgaríu, en daginn eftir ferðaðist liðið til Eistlands í leik gegn heimamönnum sem fram fór í Tallinn á þriðjudegi. Þar þótti liðið ekki sýna góðan leik og gerði markalaust jafntefli.

Arnar segir í viðtalinu við Vísi að menn hafi ekki hagað sér eins og atvinnumenn.

„Þetta er eitthvað sem er óásættanlegt," segir Arnar sem segist líta á að þetta mál sé að baki. Það hafi verið tekið á því innan liðsins og sambandsins. Hann hafi komist að þessu á sunnudagskvöldinu og þetta haft áhrif á undirbúning leiksins.

„Undirbúningurinn fór til fjandans. Að sama skapi voru ákveðnir þættir í leikskipulagi sem þurfti að breyta og laga til. Vonbrigði eru stærsta og mikilvægasta orðið í þessu."

Heimild: Vísir

Arnar um agabrotin: Undirbúningurinn fór til fjandans
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.