Fotbolti.net
15.10.26 - 17:09
Elvar Geir Magnússon

Orðin innantóm?

Orðin innantóm?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Elvar Geir Magnússon

Skoðanapistill

[email protected]

Elvar Geir Magnússon

Vonbrigði er stærsta orðið í þessu segir Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari í viðtali við Aron Guðmundsson á Vísi. Þar ræðir hann í fyrsta sinn um hegðun nokkurra landsliðsmanna í síðasta glugga.

Í viðtalinu talar hann um að leikmennirnir hafi ekki hegðað sér eins og atvinnumenn; þeir hafi brugðist sér, liðsfélögum og þjóðinni. Þetta mál er mikið högg fyrir Arnar sem hefur talað í viðtölum um fórnir og hugarfar til að láta drauminn um að fara á stórmót rætast.

Kyndilberar íslenska landsliðsins í dag sleppa ekki við samanburð við gullkynslóðina og málið hefur kveikt í umræðu um virðingarleysi gagnvart Arnari.

Á viðtalinu er allavega ljóst að Arnar lítur þessa hegðun ekki eins léttvænum augum og sumir. Bjórdrykkja og pókerklúbbar séu ekki ákjósanlegur undirbúningur hjá mikilvægum leikmönnum landsliðsins þremur sólarhringum fyrir ferðalag út og mikilvægan leik.

Hann segir líka að þetta hafi haft neikvæð áhrif á undirbúninginn fyrir Eistlandi, og því haft áhrif á liðsval og ákvarðanatökur í leiknum eins og grunsemdir voru um. Frammistaðan þar var slæm og liðið kraftlaust og bitlaust. Markalaust jafntefli niðurstaðan.
Arnar um agabrotin: Undirbúningurinn fór til fjandans
TENGT EFNI

Arnar um agabrotin: Undirbúningurinn fór til fjandans

Með færri sigrum og verri árangri hefur eftirspurn eftir miðum á landsleiki minnkað verulega. Nokkrir leikmenn hafa sagt að sökin sé þeirra, þeir þurfi að ná árangri til að landsmenn flykkist á bak við þá.

Í viðtölum hafa þeir talað um að þeir hafi trú á því að geta látið drauminn rætast og komið Íslandi á stórmót að nýju. Þangað sé stefnan sett. Það er því skiljanlegt að efasemdarfræjum sé stráð eftir þetta bakslag.

Það er verk að vinna fyrir landsliðið að sanna að orð þeirra séu ekki innantóm. Það þurfa þeir að gera inni á vellinum, og líka utan hans.
Orðin innantóm?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Orðin innantóm?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.