16.10.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Raphinha að snúa aftur

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það er mikill fengur fyrir Barcelona að Raphinha er byrjaður að æfa á fullu eftir meiðsli.
Hann meiddist í leik með brasilíska landsliðinu og hefur misst af síðustu tveimur leikjum með Barcelona.

Hann hefur verið sjóðandi heitur á tímabilinu en hann hefur skorað 14 mörk í átta leikjum.
Frenkie De Jong er einnig byrjaður að æfa en hann hefur ekkert getað spilað síðan á HM í sumar vegna meiðsla. Barcelona mætir Real Betis í spænsku deildinni á morgun. Liðið er á toppnum með fimm stiga forystu á Atletico Madrid.