Man City leiðir baráttuna um Gibbs-White - Chelsea hefur áhuga á Gyökeres - Watkins til Liverpool?
   fös 18. apríl 2025 18:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mjólkurbikarinn: Örvar innsiglaði sigur Stjörnunnar í framlengingu - Vítakeppni á Ísafirði
Örvar Eggertsson innsiglaði sigur Stjörnunnar
Örvar Eggertsson innsiglaði sigur Stjörnunnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emil Atlason skoraði tvennu
Emil Atlason skoraði tvennu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan 5 - 3 Njarðvík
0-1 Oumar Diouck ('2 )
1-1 Emil Atlason ('25 )
2-1 Emil Atlason ('36 )
2-2 Valdimar Jóhannsson ('64 )
2-3 Tómas Bjarki Jónsson ('67 )
3-3 Örvar Eggertsson ('90 )
4-3 Sindri Þór Ingimarsson ('94 )
5-3 Örvar Eggertsson ('114 )
5-3 Oumar Diouck ('118 , misnotað víti)
Rautt spjald: ,Sigurjón Már Markússon, Njarðvík ('114)Kjartan Már Kjartansson, Stjarnan ('118) Lestu um leikinn

Það var magnaður leikur í Garðabæ í Mjólkurbikarnum í dag þegar Stjarnan fékk Njarðvík í heimsókn. Omar Diouck kom Njarðvík yfir strax í upphafi leiks þegar hann átti gott skot fyrir utan vítateiginn.

Emil Atlason jafnaði metin eftir 25 mínútna leik þegar hann setti boltann í netið eftir fyrirgjöf. Um tíu mínútum síðar komst Stjarnan yfir og aftur var Emil á ferðinni en markið var nánast afrit af fyrra markinu.

Seinni hálfleikurinn byrjaði eins og sá fyrri. Tómas Bjarki Jónsson átti frábært skot þegar seinni hálfleikurinn var nokkra sekúndna gamall en Aron Dagur Birnuson varði frábærlega í horn. Upp úr horninu fékk Amin Cosic frábært tækifæri en skaut hátt yfir.

Valdimar Jóhannsson braut loksins ísinn í seinni hálfleik fyrir Njarðvík þegar hann átti skot í Guðmund Baldvin Nökkvason og í netið. Stuttu síðar kom Tómas Bjarki Njarðvík yfir þegar hann fékk boltann nánast á marklínu og eftirleikurinn auðveldur. Tómas fagnaði markinu af stakri snilld, Flikk, flakk og heljarstökk.

Sjö mínútur voru í uppbótatíma og í blálokin skoraði Örvar Eggertsson og kom Stjörnunni í framlengingu. Sindri Þór Ingimarsson tryggði Stjörnunni sigurinn í framlengingunni eftir slæm mistök frá Aroni Snæ Friðrikssyni í marki Njarðvíkur.

Örvar Eggertsson bætti öðru marki við í þegar hann skoraði með skalla af stuttu færi. Sigurjón Már Markússon fékk rautt spjald í aðdragandanum. Njarðvík fékk vítaspyrnu undir lok framlengingarinnar en Sigurjón Már Markússon fékk rautt spjald fyrir brot á Símon Logi Thasaphong. Aron Dagur gerði sér hins vegar lítið fyrir og varði spyrnuna frá Omar Diouck.

Vestri 3 - 3 HK
1-0 Eiður Aron Sigurbjörnsson ('22 )
2-0 Kristoffer Grauberg Lepik ('26 )
2-1 Dagur Orri Garðarsson ('30 )
2-2 Tumi Þorvarsson ('57 )
3-2 Daði Berg Jónsson ('90 )
3-3 Jóhann Þór Arnarsson ('90 )
Lestu um leikinn

Það er vítaspyrnukeppni að fara af stað á Ísafirði þar sem Vestri er með HK í heimsókn.

Vestri náði tveggja marka forystu en HK gafst ekki upp og náði að jafna metin. Það stefndi allt í framlengingu, Daði Berg Jónsson virtist vera tryggja Vestra sigurinn þegar hann skoraði undir lokin.

HK-ingar voru ekki hættir því Jóhann Þór Arnarsson kom HK í framlengingu þegar hann negldi boltanum í netið á fjórðu mínútu uppbótatíma. Ekkert mark var skorað í framlengingunni svo grípa þurfti til vítaspyrnukeppni.

Athugasemdir
banner
banner