18.07.04 - 16:21
Hafliði Breiðfjörð
Andy Cole til Fulham (Staðfest)




Andy Cole hefur gert tveggja ára samning við Fulham en hann fór frítt frá Blackburn Rovers. Cole sem er 32 ára gamall hefur áður leikið með Fulham, árið 1991 er hann var þar á láni. Hann kostaði Blackburn 7,5 milljónir punda er hann var keyptur frá Manchester United árið 2001.
Cole er með 15 landsleiki að baki fyrir Englands hönd en hann lék 100 leiki fyrir Blackburn og skoraði í þeim 37 mörk. Hann átti enn eitt ár eftir af samningi sínum við Blackburn en hafði fengið leyfi til að ræða við Fulham.
Þetta var tilkynnt eftir æfingleik Fulham gegn Celtic í dag en Fulham tapaði 2-0.
Þetta var tilkynnt eftir æfingleik Fulham gegn Celtic í dag en Fulham tapaði 2-0.
