Fotbolti.net
18.07.26 - 19:28
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Borja: Þeir eru með meiri gæði en við

Auglýsing
Borja Martin Iglesias, þjálfari Völsungs

Borja Martin Iglesias, þjálfari Völsungs

Canon

Mynd: Völsungur

Lengjudeildin

„Mér fannst við spila vel,“ sagði Borja Martin Iglesias, þjálfari Völsungs, eftir 1-0 tap í Laugardalnum í dag.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 0 Völsungur

„Mér finnst þeir hafa meiri gæði en við en, á síðasta þriðjungi eru þeir betri en við en ég er ánægður með okkar lið vegna þess að við sýndum hugrekki, karakter. Það er erfitt að heimsækja þennan völl en við spiluðum mjög vel,“ hélt hann svo áfram.

Borja gerði fimm breytingar á byrjunarliðinu frá 1-6 tapi gegn Aftureldingu í síðustu umferð. Aðspurður hvort hann hafi verið ánægður með hvernig liðið kom inn í þennan leik eftir vont tap í síðustu umferð segir hann:

„Já, við fengum góð viðbrögð frá liðinu. Ég veit að þessi vika var erfið fyrir okkur, við getum ekki tapað svona, og mér fannst allt liðið sýna karakter. Við erum að búa til gildi og það er mikilvægt fyrir okkur að sýna það á vellinum. Við erum með gæðaleikmenn en við þurfum að komast skrefinu lengra.“

Völsungmenn hafa verið sprækir á tímabilinu og gefið liðum hörkuleiki en þrátt fyrir það hefur stigasöfnunin verið af skornum skammti. Hefur það áhrif á liðið að spila vel en þrátt fyrir það sækja fá stig?

„Já það er ekki auðvelt en við erum saman í þessu. Við berjumst saman og við hlaupum saman. Við höldum áfram þangað til í lokin og við sýnum hugrekki og karakter. Allir stuðningsmenn, ekki hafa áhyggjur, við vinnum hart að okkur í hverri viku til þess að vinna leikina og stigin munu skila sér, ekki hafa áhyggjur.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.