Fotbolti.net
18.07.26 - 15:43
Brynjar Ingi Erluson

Haukur Brink í Aftureldingu (Staðfest)

Haukur Brink í Aftureldingu (Staðfest)
Canon

Mynd: Afturelding

Afturelding hefur fengið kantmanninn Hauk Örn Brink á láni frá Stjörnunni út tímabilið.
Haukur er 21 árs gamall og uppalinn Stjörnumaður. Hann hefur leikið 36 leiki í Bestu deildinni með Stjörnunni undanfarin þrjú ár og skorað sex mörk.

Á þessari leiktíð hefur hann komið við sögu í fimmtán leikjum og skorað eitt mark.

Haukur er nú kominn til Aftureldingar á láni og mun freista þess að hjálpa liðinu að komast aftur upp í Bestu deildina.

Hann verður gjaldgengur þegar Afturelding mætir Gróttu 25. júlí. Afturelding er á toppi Lengjudeildarinnar með 31 stig, einu stigi á undan Fylki sem er í öðru sæti.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding20+3142
2Þróttur R.20+1837
3Fylkir20+1237
4HK20+1235
5Njarðvík20+1035
6Grótta20-327
7Vestri20-927
8Leiknir R.20025
9ÍR20-525
10Grindavík20-1121
11Völsungur20-1620
12Ægir20-398
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.