Fotbolti.net
18.07.26 - 17:20
Magnús Atlason

Nenad: Ég er ráðalaus

Auglýsing
Nenad: Ég er ráðalaus
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Ægir tapaði stórt gegn Gróttu í 14. umferð Lengjudeildarinnar 6-1. Þetta var ellefta tap Ægis í sumar og þeir hafa ekki unnið leik frá því í lok maí. Fótbolti.net var á staðnum og náði Nenad Zivanovic þjálfara liðsins í viðtal.
"Ég get ekki sagt mikið, við áttum þetta fullkomlega skilið. Við litum illa út á vellinum, svo mikið af mistökum, bæði taktískum og einstaklings."

Ægismenn hafa nú fengið á sig 42 mörk í sumar, mest allra liða.

"Það er of mikið, í síðustu 4 leikjum höfum við fengið á ykkur 4 mörk í fyrri hálfleik. Ég skil ekki hvernig það er hægt, þrátt fyrir að þú myndir vilja fá á þig 4 mörk þá væri það ekki auðvelt."

Ægir var sterkari aðilinn fyrstu 10 mínútur leiksins áður en flóðgáttir opnuðust. Skorti einbeitingu?

"Það er erfitt að segja hvort það hafi verið einbeitingarskortur. Það var eitthvað sem gerðist, þegar við fáum á okkur mark þá gerist eitthvað andlegt. Ég held að liðið hafi meiri gæði en það hefur sýnt á vellinum undanfarið. Í upphafi tímabils vörðumst við nokkuð vel og við héldum hreinu en svo held ég að sjálfstraustið hafi farið, sérstaklega þegar við erum að tapa stórt í fyrri hálfleik."

Hvað ætlarðu að gera til þess að snúa þessu gengi við?

"Ég hef reynt að breyta liðinu og leikkerfinu en það á maður að gera á uppbyggingartímabilinu en þá vorum við ekki með lið. Núna er ég ráðalaus í að finna bestu stöðuna og liðið."

Horfa má á allt viðtalið í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.