Fotbolti.net
25.08.26 - 10:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Villa setur sig í samband við Palace og Milan

Mateta

Mateta

Canon

Mynd: EPA

Aston Villa hefur sett sig í samband við Crystal Palace varðandi möguleikann á því að fá framherjann Jean-Philippe Mateta í sínar raðir frá Palace.

Villa er að skoða framherjamálin þar sem Ollie Watkins er líklega á leið til Al Hilal í Sádi-Arabíu.
Mateta í stappi við Palace út af samningnum
TENGT EFNI

Mateta í stappi við Palace út af samningnum

Villa hefur líka haft samband við AC Milan varðandi kantmanninn Rafael Leao.

Mateta á eitt ár eftir af samningi sínum við Palace en Villa hefur áður horft til Frakkans.

Villa horfir einnig til Nicolas Jackson hjá Chelsea og búist er við því að Jackson fari frá Chelsea fyrir gluggalok. Napoli horfir einnig til Jackson.
Leao

Leao

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.