Fotbolti.net
25.08.26 - 12:00
Kári Snorrason

Trossard löðrungaður í leik - Besiktas lætur í sér heyra

Trossard löðrungaður í leik - Besiktas lætur í sér heyra
Canon

Mynd: Besiktas

Leandro Trossard og Besiktas hafa gagnrýnt dómgæslu í leik sínum gegn Alanyaspor eftir að Fidan Aliti, leikmaður Alanyaspor, slapp við refsingu þrátt fyrir að slá Trossard í andlitið.

Þrátt fyrir að notast sé við myndbandsdómgæslu í Tyrklandi var atvikið ekki skoðað frekar og lét Trossard vel í sér heyra í viðtali eftir leik.

„Það hefði klárlega átt að breyta dómnum; mér finnst mótherjinn hafa slegið mig. Augljóst rautt spjald. Það þurfti að breyta dómnum,“ sagði Trossard.

Belgíski landsliðsmaðurinn gekk í raðir tyrkneska liðsins fyrr í sumar frá Englandsmeisturum Arsenal.

Besiktas hefur birt myndskeið af atvikinu og rita þar við; „Stöðurnar eru ólíkar, tímabilin eru ólík, nöfnin eru ólík, ákvarðanirnar eru alltaf þær sömu!“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.