Fotbolti.net
25.08.26 - 11:20
Elvar Geir Magnússon

Einn af eigendum Leeds handtekinn fyrir að kaupa vændi

Jed York.

Jed York.

Canon

Mynd: EPA

Jed York, meðeigandi í fótboltaliðunum Leeds United og skoska stórliðinu Rangers, hefur verið settur í fangelsi í Ohio eftir að hafa verið handtekinn fyrir að kaupa vændi.
York er 46 ára og er einnig eigandi San Francisco 49ers en hann var sakfelldur fyrir óspektir eftir að hafa játað sekt sína. Hann var dæmdur í eins dags fangelsi auk þess að fá sekt eftir að hafa verið gripinn með tálbeituaðferð.

Samkvæmt fréttum í bandarískum fjölmiðlum segir að York hafi svarað auglýsingu á vændisvefsíðu sem leyniþjónustumenn úr sérsveit gegn mansali höfðu settu inn.

York er hluti af 49ers fjárfestingahópnum sem á Leeds og Rangers en bæði félög hafa sagt að þau muni ekki gefa neitt út um mál hans.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.