Fotbolti.net
18.07.26 - 17:27
Ívan Guðjón Baldursson

Trincao til Sádi-Arabíu (Staðfest)

Trincao til Sádi-Arabíu (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Sádi-arabíska stórveldið Al-Ahli er búið að kynna portúgalska landsliðsmanninn Francisco Trincao til leiks sem nýjan leikmann.
Að kaupa Trincao fyrir 50 milljónir
TENGT EFNI

Að kaupa Trincao fyrir 50 milljónir

Al-Ahli greiðir rúmar 40 milljónir evra, auk 5 milljóna í árangurstengdar aukagreiðslur, til að kaupa kantmanninn, sem kom með beinum hætti að 31 marki í 54 leikjum, úr röðum Sporting CP.

Trincao er 26 ára gamall og spilaði hálftíma með Portúgal á heimsmeistaramótinu en var þar fyrir utan ónotaður varamaður.

Trincao gerir fjögurra ára samning við Al-Ahli eftir að hafa verið mikilvægur hlekkur í liði Sporting undanfarin fjögur ár. Þar áður lék hann meðal annars fyrir Barcelona og Wolves, eftir að hafa alist upp hjá Braga.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.