18.09.26 - 21:33
Ívan Guðjón Baldursson
„Besta þjálfarateymi á Íslandi" áfram hjá Fram (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram er búið að gefa út tilkynningu þess efnis að Helgi Sigurðsson aðstoðarþjálfari er búinn að framlengja út næstu tvö ár.
Helgi verður því áfram aðstoðarþjálfari Rúnars Kristinssonar og hefur Fram verið að gera magnaða hluti undir þeirra leiðsögn.
Helgi þekkir félagið vel eftir að hafa leikið með Fram á leikmannaferlinum, en hann hefur verið í þjálfarateymi liðsins í þrjú ár. Hann býr yfir mikilli reynslu úr atvinnumennsku í fótbolta eftir að hafa leikið meðal annars fyrir Stuttgart, Stabæk og Panathinaikos, auk þess að eiga 62 A-landsleiki að baki.
Hann býr einnig yfir mikilli reynslu úr þjálfun eftir að hafa þjálfað hjá Fylki, ÍBV og Grindavík meðal annars.
„Við erum með besta þjálfarateymi á Íslandi og að framlengja samning Helga er stór liður í því að svo verði áfram næstu árin," segir Sigurður Hrannar Björnsson, formaður meistaraflokksráðs Fram.
Fram er í þriðja sæti Bestu deildarinnar með 45 stig eftir 23 umferðir og er liðið öruggt með langþráð Evrópusæti fyrir næstu leiktíð.