18.09.26 - 22:45
Ívan Guðjón Baldursson
Dani framlengir í Garði (Staðfest)

Mynd: Víðir

Mynd: Víðir
Daniel Benéitez er búinn að gera tveggja ára samning við Víði Garði eftir að hafa náð góðum árangri á stjórnartíð sinni hjá félaginu.
Dani lék með Víði í þrjú ár áður en hann tók við þjálfun meistaraflokks síðasta haust. Víðir féll úr 2. deild í fyrra og sigraði 3. deild í ár, með 46 stig úr 22 umferðum.
Sólmundur Einvarðsson verður aðstoðarþjálfari og munu Örn Steinar Marinósson og Sævar Júlíusson halda áfram í þjálfarateyminu.
„Við erum virkilega ánægð með stöðuna og andann í liðinu og hlökkum til framhaldsins," segir meðal annars í tilkynningu frá Garði.