Fotbolti.net
18.09.26 - 19:22
Ívan Guðjón Baldursson

Daníel Hafsteins framlengir í Víkinni (Staðfest)

Daníel Hafsteins framlengir í Víkinni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Hafsteinsson er búinn að skrifa undir nýjan samning við Íslandsmeistara Víkings R. sem gildir næstu fjögur árin, til ársins 2030.
Sterkasta lið 23. umferðar - Danni Hafsteins í sjötta sinn
TENGT EFNI

Sterkasta lið 23. umferðar - Danni Hafsteins í sjötta sinn

Daníel kom til Víkings í fyrra og hefur verið afar mikilvægur fyrir liðið síðan. Hann var valinn í sjötta sinn í sterkasta lið umferðarinnar í Bestu deildinni eftir síðustu umferð og er meðal bestu leikmanna deildarinnar.

Daníel er fæddur 1999 og lék 19 leiki fyrir yngri landslið Íslands, auk tveggja vináttuleikja fyrir A-landsliðið. Hann hefur áður leikið fyrir FH, KA, Dalvík/Reyni og Helsingborg á ferlinum.

„Danni hefur sannað sig sem allra besti miðjumaður landsins, og hefur átt tvö mjög góð tímabil hjá okkur. Hann og Gylfi hafa myndað algjöra yfirburðar miðju í íslenskum fótbolta," segir Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingum.


Daníel Hafsteins framlengir í Víkinni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.