18.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Fyrrum þjálfari Loga tekinn við liði Salah (Staðfest)

Mynd: Trabzonspor

Mynd: Trabzonspor
Þýski þjálfarinn Thomas Reis er tekinn við tyrkneska liðinu Trabzonspor en hann kemur í stað Fatih Tekke sem sagði starfi sínu lausu á dögunum.

TENGT EFNI
Þjálfari Salah sagði upp störfum eftir tapið
Tekke hætti með Trabzonspor aðeins nokkrum mínútum eftir að liðinu mistókst að tryggja sér sæti í deildarkeppni Evrópudeildarinnar.
Félagið hafnaði upphaflega ósk hans um að láta af störfum en eftir nokkra fundi var ákveðið að leiðir skyldu skilja.
Leitin að nýjum þjálfara hófst strax og hefur hinn 52 ára gamli Thomas Reis nú verið ráðinn. Hann gerði tveggja ára samning við félagið.
Reis náði frábærum árangri með Samsunspor, þar sem Logi Tómasson lék undir hans stjórn, á árunum 2024 til 2026. Undir hans stjórn komst félagið meðal annars í Evrópudeildina í fyrsta sinn í sögu sinni.
Hann var látinn fara frá Samsunspor í febrúar eftir slæmt gengi en tekur nú við Trabzonspor.
Trabzonspor fékk nokkrar stórar byssur til sín í sumar, þar á meðal Mohamed Salah, Fabinho og Ruslan Malinovskyi.
Liðið er með sjö stig eftir fimm deildarleiki. Þrátt fyrir að hafa misst af sæti í Evrópudeildinni heldur Trabzonspor áfram í Evrópukeppni og tekur þátt í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar sem hefst í næsta mánuði.

Ho? geldin ???????????????????????? ???????????????? ?????? pic.twitter.com/WJGKzNYAkt
— Trabzonspor (@Trabzonspor) September 17, 2026