Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 18. október 2019 11:35
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Víkurfréttir 
Siggi Raggi þjálfar Keflavík með Eysteini (Staðfest)
Eysteinn, Sigurður Garðarsson formaður og Siggi Raggi.
Eysteinn, Sigurður Garðarsson formaður og Siggi Raggi.
Mynd: Keflavík
Sigurður Ragnar er fyrrum þjálfari kínverska kvennalandsliðsins.
Sigurður Ragnar er fyrrum þjálfari kínverska kvennalandsliðsins.
Mynd: Getty Images
Keflavík hefur skipt yfir í tveggja þjálfara kerfi og Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur verið ráðinn sem annar aðalþjálfari við hlið Eysteins Húna Haukssonar.

„Það eru spennandi tímar framundan í Keflavík og ég er sannfærður um að áður en langt um líður verður liðið tilbúið til að berjast meðal þeirra bestu. Hér er mikill efniviður og gott umhverfi til að ná árangri," segir Sigurður en Keflavík endaði í fimmta sæti Inkasso-deildarinnar í sumar.

Sigurður hafði einnig átt í viðræðum við Víking Ólafsvík og Þór Akureyri samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Frétt Víkurfrétta:
Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur verið ráðinn sem annar aðalþjálfari meistaraflokks karla hjá Knattspyrnudeild Keflavíkur til næstu þriggja ára. Hann mun starfa við hlið Eysteins Húna Haukssonar en hann hefur síðasta eina og hálfa tímabil verið aðalþjálfari og aðstoðarþjálfari þar á undan.

Stjórn knattspyrnudeildar Keflavíkur fagnar þessari ráðningu, segir í frétt frá deildinni, en auk þess að vera annar aðalþjálfari meistaraflokks karla, mun honum einnig verða falið að halda utanum önnur verkefni við þjálfun á öllum stigum uppeldisstarfsins, sem félagið leggur ríka áherslu á.

Sigurður Ragnar er fyrrverandi þjálfari kvennalandsliðs Íslands og kom því tvisvar í úrslitakeppni Evrópumótsins, auk þess sem hann á stóran þátt í að koma kvennaknattspyrnu á þann stall sem hún er komin á í dag. Þá hefur hann á þjálfaraferli sínum verið aðstoðarþjálfari Lilleström í tvö ár, þjálfað knattspyrnulið ÍBV í efstu deild auk þess að þjálfa félagslið og kvennalandslið Kína undanfarin ár.

Síðastliðin tvö ár hefur Sigurður haldið fjölda fyrirlestra fyrir íþróttafólk og fyrirtæki um hvað þarf til að ná árangri. Sigurður er íþróttafræðingar að mennt með meistarapróf í íþróttasálfræði og hefur tekið EUFA Pro þjálfaragráðu sem er æðsta stig þjálfaramenntunar sem hægt er að sækja.

Sigurður kemur í þjálfarateymi Keflavíkur í kjölfar brotthvarfs Mílans Stefáns Jankovic sem var aðstoðarþjálfari Keflavíkur sl. sumar í Grindavík.

Siggi Raggi: „Ég er mjög spenntur fyrir því að koma inní öflugt þjálfarateymi Keflavíkur og starfa með Eysteini við að byggja upp Keflavíkurliðið og byggja á þeim grunni sem hefur verið lagður hér síðustu ár. Það eru spennandi tímar framundan í Keflavík og ég er sannfærður um að áður en langt um líður verður liðið tilbúið til að berjast meðal þeirra bestu. Hér er mikill efniviður og gott umhverfi til að ná árangri."

Eysteinn Húni: „Það er ánægjulegt að Siggi sé kominn til starfa hjá Keflavík og miðað við mín fyrri kynni af honum og hans störfum og vinnubrögðum þá smell-passar hann inn í okkar prógram. Ég er alveg klár á því að þessi ráðning á eftir að hafa mikil og góð áhrif á félagið í heild."

Sigurður Garðarsson formaður Keflavíkur: „Við erum mjög ánægð í Keflavík að fá Sigga Ragga til starfa með okkur. Hann hefur unnið mörg afrek á sínum ferli og náð árangri sem tekið er eftir. Það er þannig fólk við við viljum hafa í Keflavíkurliðinu. Siggi Raggi kemur með nýjar áherslur í uppbyggingarstarfið og ég tel að við séum að búa til gríðarlega öflugt þjálfarateymi sem getur náð því besta úr leikmannahópnum okkar."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner