Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 18. október 2020 14:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Miedema skráði sig á spjöld sögunnar
50 mörk í 50 leikjum.
50 mörk í 50 leikjum.
Mynd: Getty Images
Vivianne Miedema, sóknarmaður Arsenal, er búin að skrá sig á spjöld sögunnar í enskum fótbolta.

Núna er í gangi nágrannaslagur Arsenal og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni. Staðan er 3-0 fyrir Arsenal og skoraði Miedema annað markið.

Hún er þar með fyrsti leikmaðurinn sem skorar 50 mörk í úrvalsdeild kvenna í Englandi, en hún var stofnuð í núverandi mynd fyrir tíu árum síðan.

Það sem meira er, að þá skoraði Miedema þessi 50 mörk í aðeins 50 leikjum.

Miedema, sem er 24 ára, er magnaður markaskorari. Hún hefur leikið með Arsenal frá 2017.


Athugasemdir
banner
banner
banner