Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 19. janúar 2021 14:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mikael Egill skoraði tvö í fyrsta leik eftir langt hlé
Mynd: SPAL
Frosinone 0 - 5 Spal

Mikael Egill Ellertsson og félagar í Spal eru komnir í 16-liða úrslit Primavera bikarkeppninnar á Ítalíu. Primavera er blanda af varaliðs og leikmönnum sem eru yngri en nítján ára.

Ekki hafði verið í Primavera í þrjá mánuði og var þetta fyrsti leikur Spal eftir hlé. Mikael var í byrjunarliði Spal og skoraði tvö mörk liðsins í öruggum 0-5 útisigri á Frosinone.

Mikael skoraði annað mark liðsins á 47. mínútu og á 61. mínútu skoraði hann þriðja mark liðsins.

Spal mætir Empoli í næstu umferð Primavera bikarsins.

Viðtal við Mikael í síðustu viku:
Mikael Egill: Gaman að heyra af áhuga frá svona stóru félagi
Athugasemdir
banner
banner