Frá brottrekstri í stærsta starf landsins á sextán dögum

Freyr Alexandersson er nýr þjálfari Rosenborg.

Mynd: EPA

Fyrir rúmum tveimur vikum, þann 1. júní, var Freyr Alexandersson rekinn frá Brann. Sextán dögum síðar var hann kynntur sem nýr þjálfari Rosenborg og er kominn í stærsta starf ferilsins til þessa. það er oft talað um að hlutirnir gerist hratt í fótboltanum en þetta er á öðru stigi.
„Fyrir aðeins mánuði síðan var ég að taka viðtal við Frey eftir þrjá sigra í röð í Eliteserien," segir Mads Boyum, blaðamaður hjá BT Sporten í Bergen við Fótbolta.net.
„Það er varla mánuður síðan hann var vítaspyrnukeppni frá því að vinna bikarúrslitaleik gegn Bodö/Glimt. Það er súrrealískt að horfa til baka og sjá hann rekinn og síðan ráðinn til Rosenborg á svo skömmum tíma."
Í Bergen eru margir enn þeirrar skoðunar að Brann hafi brugðist of fljótt við.
„Það hefur verið athyglisvert að sjá hvernig gagnrýni stuðningsmanna hefur beinst að stjórnendum Brann en ekki Frey. Flestir óska honum velfarnaðar, þó það flæki málin að hann sé að ganga til liðs við einn helsta erkifjanda félagsins," segir Boyum.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 18. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

TENGT EFNI