Fotbolti.net
Íslensk yfirtaka hjá stærsta félagi Noregs - „Lið í miklum vandræðum"

18.06.26

Íslensk yfirtaka hjá stærsta félagi Noregs - „Lið í miklum vandræðum"

EFTIR GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Rosenborg er ekki lengur stórveldið sem öll önnur félög á Norðurlöndum óttuðust en á sama tíma litu upp til. Félagið sem um áratugaskeið réð ríkjum í norskum fótbolta hefur misst stöðu sína, stuðningsmenn eru orðnir óþolinmóðir og liðið er í fallsæti frekar en toppbaráttu. Nú hafa stjórnendur félagsins leitað til Íslands eftir lausn.

Með ráðningu Freys Alexanderssonar og komu Alfreðs Finnbogasonar í stól yfirmanns fótboltamála er komin til sögunnar íslensk yfirtaka hjá stærsta félagi Noregs. Verkefnið er að endurvekja sjálfsmynd félags sem hefur glatað áttum sínum og skila Rosenborg aftur þangað sem stuðningsmenn telja að það eigi heima.

Fótbolti.net ræddi við tvo norska fjölmiðlamenn sem þekkja Frey og stöðuna hjá Rosenborg afar vel. Viðbrögðin við ráðningunni eru blendin en spurningin er hvort tveir Íslendingar geti snúið við gengi stærsta félagsins í norskum fótbolta.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.