Fotbolti.net
19.06.26 - 15:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Lampard að endursemja - Wales gæti misst Bellamy

Frank Lampard hefur gert frábæra hluti hjá Coventry.

Frank Lampard hefur gert frábæra hluti hjá Coventry.

Canon

Mynd: EPA

Chelsea goðsögnin Frank Lampard er samkvæmt heimildum Sky Sports nálægt því að endursemja við Coventry. Hann var orðaður við Chelsea áður en Xabi Alonso var ráðinn til félagsins.

Lampard er á leið í sitt síðasta ár sem stjóri Coventry en viðræður um nýjan samning eru í gangi og stefnir í að hann muni framlengja. Talið er að hann skrifi undir langtímasamning við félagið, en Lampard stýrði liðinu upp úr Championship-deildinni í vor.
Formaður Coventry: Hef ekki áhyggjur af framtíð Lampard
TENGT EFNI

Formaður Coventry: Hef ekki áhyggjur af framtíð Lampard

Í öðrum Championship-tengdum fréttum er það helst að Burnley, sem féll úr úrvalsdeildinni í vor, hefur mikinn áhuga á því að fá Craig Bellamy til að stýra liðinu. Bellamy er í starfi sem landsliðsþjálfari Wales, hefur gert flotta hluti í því starfi og á tvö ár eftir af samningnum við velska sambandið.

Burnley er í leit að manni til að taka við af Scott Parker sem var rekinn í apríl. Bellamy er 46 ára og þekkir vel til á Turf Moor þar sem hann var aðstoðarmaður Vincent Kompany á sínum tíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.