Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fim 23. apríl 2026 13:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Formaður Coventry: Hef ekki áhyggjur af framtíð Lampard
Mynd: EPA
Frank Lampard hefur gert frábæra hluti á þessu tímabili en hann hefur stýrt Coventry til sigurs í Championship deildinni og liðið mun því spila í úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

Hann tók við liðinu á miðju síðasta tímabili og stýrði liðinu í umspil þar sem liðið tapaði í undanúrslitum. Doug King, formaður Coventry, hefur ekki miklar áhyggjur af því að missa stjórann en Lampard er fyrrum leikmaður Chelsea og stjórastaðan þar er laus.

„Hann gerði risastóra hluti á leikmannaferlinum en að komast upp úr þessari deild sem meistari án fallhlífargreiðslna er risastór afrek sem enginn getur tekið af honum," sagði King.

„Það verða allir orðaðir við alla. Það eru vonbrigði að félög eru að ráða þrjá til fjóra stjóra á einu tímabili. Við viljum ekki vera í þeirri stöðu. Maður sér hversu tengdur Lampard er borginni tilfinningalega, maður sér hvað það þýðir fyrir hann að komast upp um deild og vinna titilinn, hann hefur fundið stað þar sem hann er hamingjusamur."

„Það þýðir ekki að það munu koma yfirþyrmandi tilboð í hann í sumaar og hann mun þurfa taka ákvörðun því hann hefur sýnt að hann er topp þjálfari. Ég held að hann sé ánægður, ég er ánægður. Við erum skælbrosandi og höfum ekki áhyggjur af því sem kann eða kann ekki að gerast hjá honum," sagði King að lokum.
Slapp
banner
banner