Fotbolti.net
19.07.04 - 13:06
Magnús Már Einarsson

Werder Bremen fær Dana (Staðfest)

Werder Bremen fær Dana (Staðfest)
Canon
Þýsku meistararnir í Werder Bremen hafa fengið danska miðjumanninn Daniel Jensen frá spænska liðinu Murcia fyrir óuppgefna upphæð. Hinn 25 ára gamli Jensen hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Werder Bremen en þessi fyrrum leikmaður Heerenven stóðst læknisskoðun hjá Werder Bremen í gær.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem að Brimarborgarar fá í sumar en hinir eru sóknarmaðurinn Miroslav Klose, varnarmaðurinn Frank Fahrenhorst og brasilíski varnarmaðurinn Gustavo Nery.

Þess má til gamans geta að eldri bróðir Daniel Jensen, Niclas Jensen spilar með Borussia Dortmund í Bundesligunni og því munu bræður berjast í vetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.