Davíð Helgi til Lyngby (Staðfest) - Býst við því að verðmæti hans muni aukast verulega

Mynd: Lyngby

Mynd: Lyngby
Davíð Helgi Aronsson er genginn til liðs við danska félagið Lyngby á eins árs lánssamningi frá Víkingi. Danska félagið hefur möguleika á að kaupa hann á meðan á láninu stendur.
Þessi 19 ára gamli leikmaður var á láni hjá Keflavík í sumar en Víkingur kallaði hann til baka og hefur lánað hann til danska félagsins. Hann spilaði 13 leiki í Bestu deildinni í sumar og skoraði eitt mark.

„Þetta er gríðarlega spennandi verkefni, ég veit ekki til þessa að þetta hafi gerst áður í sögu félagsins að leikmaður hafi verið lánaður í jafn sterka deild og reikna ég með að þetta muni auka verðmæti leikmannsins verulega," sagði Kári Árnason yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi.
Lyngby er nýliði í efstu deild í Danmörku eftir að hafa staðið uppi sem sigurvegar í næst efstu deild á síðustu leiktíð. Ísak Snær Þorvaldsson og Daníel Freyr Kristjánsson eru leikmenn liðsins.
Lyngby er nýliði í efstu deild í Danmörku eftir að hafa staðið uppi sem sigurvegar í næst efstu deild á síðustu leiktíð. Ísak Snær Þorvaldsson og Daníel Freyr Kristjánsson eru leikmenn liðsins.
Víkingur og Lyngby hafa náð samkomulagi um að Davíð Helgi Aronsson verði lánaður til liðsins, sem spilar í efstu deild í Danmörku, út tímabilið. Búið er að kalla hann til baka úr láni frá Keflavík, þar sem hann hefur staðið sig frábærlega.
— Víkingur Fótbolti (@vikingurfc) July 19, 2026
Víkingar óska Davíð alls hins besta á… pic.twitter.com/gCOAqnc05a