Fotbolti.net
19.07.26 - 19:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Leikmenn ósáttir við Cherki - „Hegðun sem ég hafði aldrei séð áður"

Leikmenn ósáttir við Cherki - „Hegðun sem ég hafði aldrei séð áður"
Canon

Mynd: EPA

Leikmenn franska landsliðsins voru sérstaklega ósáttir við Rayan Cherki eftir tap liðsins gegn Englandi í leiknum um bronsið á HM í gær.

Frakkland var 4-0 undir í hálfleik. Það sást til Cherki rífast við Didier Deschamps áður en hann gekk í burtu í vatnspásunni í fyrri hálfleik.
„Við byrjuðum fyrri hálfleikinn frekar skammarlega,“ Adrien Rabiot, miðjumaður franska liðsins, eftir leikinn.

„Ég sá hegðun hjá sumum leikmönnum sem ég hafði aldrei séð áður. Það eru vonbrigði því þetta var síðasti leikurinn til að standa sig vel í þessari keppni.“

Deschamps gerði fjórfalda breytingu í hálfleik og tók Cherki m.a. af velli. Leiknum lauk með 6-4 sigri Englands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.