Fotbolti.net
26.08.26 - 10:31
Elvar Geir Magnússon

Bouaddi til Man City (Staðfest)

Ayyoub Bouaddi er kominn til City.

Ayyoub Bouaddi er kominn til City.

Canon

Mynd: Manchester City

Manchester City hefur gengið frá kaupum á marokkóska miðjumanninum Ayyoub Bouaddi og hann skrifað undir fimm ára samning. Þessi 18 ára leikmaður er keyptur frá Lille í Frakklandi á um 85 milljónir punda.

„Þetta er mjög sérstakur dagur fyrir mig og mína fjölskyldu. Í mínum huga er Manchester City besta félag heims og það er draumur að vera hér og geta kallað mig City leikmann," segir Bouaddi.

„Ég hef lagt mikið á mig til að verða besti leikmaður sem ég get orðið. Ég hef lengi horft á City og elska leikstíl þeirra. Hópurinn er heimsklassa og stjórinn líka. Það er margt sem ég þarf að bæta mig í. Ég er bara 18 ára en er ánægður með þróunina sem hefur orðið hingað til."

Bouaddi lék 88 leiki fyrir Lille síðan hann spilaði sinn fyrsta leik í október 2023, þremur dögum eftir 16 ára afmæli sitt. Hann hjálpaði liðinu að enda í þriðja sæti í frönsku deildinni á síðasta tímabili.
Stærðfræðineminn sem stórliðin girnast
TENGT EFNI

Stærðfræðineminn sem stórliðin girnast

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.