Fotbolti.net
19.07.26 - 15:06
Brynjar Ingi Erluson

Sjöunda tapið í röð hjá Loga

Logi Hrafn spilaði í enn einu tapinu hjá Värnamo

Logi Hrafn spilaði í enn einu tapinu hjá Värnamo

Canon

Mynd: Värnamo

Logi Hrafn Róbertsson og félagar í Varnamo töpuðu sínum sjöunda leik í röð þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Ljungskile, 3-2, í sænsku B-deildinni í dag.
Mikið hefur gengið á hjá Varnamo á tímabilinu en á dögunum var Srdjan Tufegdzic látinn taka poka sinn.

Tufegdzic fékk Loga Hrafn til félagsins frá NK Istra í febrúar og fór liðið vel af stað undir hans stjórn. Varnamo vann þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum en hefur ekki fagnað sigri síðan í apríl. Síðan þá hefur liðið tapað tíu leikjum og aðeins gert eitt jafntefli.

Logi hóf fyrsta leikinn undir stjórn nýs þjálfara á varamannabekknum en kom inn á undir lok fyrri hálfleiks.

Varnamo situr í næstneðsta sæti sænsku B-deildarinnar með tíu stig eftir 15 leiki og er sex stigum frá öruggu sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.