Fotbolti.net
24.08.26 - 20:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Joao Pedro og Palmer frábærir í sigri Chelsea

England: Joao Pedro og Palmer frábærir í sigri Chelsea
Canon

Mynd: EPA

Fulham 2 - 3 Chelsea
0-1 Joao Pedro ('1 )
1-1 Josh King ('23 )
1-2 Morgan Rogers ('41 )
1-3 Cole Palmer ('49 )
2-3 Gonzalo Manuel Garcia ('54 )
Það var fjör í Lundúnaslagnum þar sem á Craven Cottage þar sem Fulham fékk Chelsea í heimsókn.

Chelsea náði forystunni eftir þrjátíu sekúndna leik þegar Joao Pedro skoraði eftir sendingu í gegn frá Cole Palmer.

Fulham náði að jafna metin þegar Josh King skoraði eftir laglegt samspil við Timothy Castagne. Chelsea endurheimti forystuna stuttu síðar.

Þá unnu nýju mennirnir saman. Maxence Lacroix átti sendingu út í teiginn og Morgan Rogers fékk boltann og skoraði.

Pedro og Palmer unnu svo aftur saman snemma í seinni hálfleik. Pedro komst inn á teiginn og sendi á Palmer sem skoraði úr þröngu færi.

Veislan var ekki búin því Gonzalo Garcia skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Fulham með skalla eftir að Robert Sanchez varði boltann út í teiginn.

Nær komust Fulham menn ekki og sigur Chelsea staðreynd.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.