Spánn með 55% líkur á HM-titlinum og Argentína 45%

Spánverjar eru rétt svo sigurstranglegri en Argentínumenn

Mynd: EPA

Spánn og Argentína mætast í úrslitaleik HM á sunnudaginn klukkan 19 að íslenskum tíma. Argentína er ríkjandi heimsmeistari og Spánn Evrópumeistari. Spá Metils gefur Spáni 55% líkur á titlinum en Argentínu 45%.
Spánn vann H-riðil eftir markalaust jafntefli við Grænhöfðaeyjar í fyrsta leik, 4–0 sigur á Sádi-Arabíu og 1–0 sigur á Úrúgvæ. Í útsláttarkeppninni lagði liðið Austurríki 3–0, Portúgal 1–0, Belgíu 2–1 og loks Frakkland 2–0 í undanúrslitum. Vörnin sker sig úr enda hefur Spánn aðeins fengið á sig eitt mark í sjö leikjum á mótinu.
Argentína vann J-riðil með fullu húsi stiga eftir sigra á Alsír 3–0, Austurríki 2–0 og Jórdaníu 3–1. Sóknarleikurinn hefur borið liðið í gegnum útsláttarkeppnina þar sem það skoraði ellefu mörk í fjórum leikjum. Fyrst vann það Grænhöfðaeyjar 3–2, eina liðið sem hefur náð stigi af Spáni á mótinu, svo Egyptaland 3–2, Sviss 3–1 og loks England 2–1 í undanúrslitum. Alls hefur Argentína skorað 19 mörk á mótinu en fengið á sig sjö.
Leiðirnar tvær hafa samt ekki verið jafn þungar. Þrír af fjórum andstæðingum Spánar í útsláttarkeppninni, Portúgal, Belgía og Frakkland, eru meðal tíu sterkustu liða mótsins í mati líkansins. Af andstæðingum Argentínu í útslættinum kemst aðeins England í þann hóp. Riðill Argentínu var að vísu þyngri en riðill Spánar en yfir mótið í heild hafa andstæðingar Spánar engu að síður mælst nokkru sterkari.

Fyrir mót var Argentína sigurstranglegasta lið keppninnar samkvæmt líkaninu með 17,8% líkur á titlinum en Spánn kom næst með 16,8%. Jafnteflið við Grænhöfðaeyjar dró úr líkum Spánar í upphafi og Argentína hélt forystunni í gegnum riðlakeppnina. Eftir 16-liða úrslitin tók Spánn fram úr og hefur haldið forystunni síðan.

Umskiptin sjást líka í mati líkansins á styrk liðanna. Forskot Argentínu fyrir mót byggðist einkum á vörninni en síðan hefur vörn Spánar styrkst jafnt og þétt í matinu á meðan vörn Argentínu hefur gefið eftir í útsláttarkeppninni. Nú metur líkanið varnir liðanna nákvæmlega jafnsterkar og munurinn liggur allur í sókninni þar sem Spánn stendur framar.

Leikurinn sjálfur er metinn jafn. Í venjulegum leiktíma eru 38% líkur á sigri Spánar, 32% á jafntefli og 30% á sigri Argentínu. Tæplega þriðjungslíkur eru því á framlengingu. Þegar framlenging og vítakeppni eru teknar með í reikninginn hallar naumlega á Argentínu, 55% gegn 45%.

Spáin miðast við stöðuna 16. júlí, eftir að undanúrslitunum lauk.
Lifandi spá og allt útsláttartréð má skoða á metill.is/hm2026.