19.08.04 - 13:59
Magnús Már Einarsson
Salva til Atletico Madrid (Staðfest)

Salva verður númer 19.


Salva verður númer 19.

Sóknarmaðurinn Salva Ballesta hefur verið lánaður til Atletico Madrid í eitt ár frá Valencia. Hinn 29 ára gamli Salva var markahæstur í La Liga árið 1999-2000 með Racing Santander og var svo markahæstur með Atletico Madrid í fyrstu deildinni 2000-2001 en hann gekk til liðs við Valencia í júlí 2001 fyrir sjö milljónir punda. Hann er ekki í plönum Claudio Ranieri hjá Valencia fyrir komandi tímaibil en Salva var í láni hjá Malaga á síðustu leiktíð og skoraði nítján mörk í La Liga.
