Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 26. nóvember 2019 11:15
Fótbolti.net
Treyjuuppboð Gunnleifs - Gylfi, Hart og Meireles
Gylfi í leik á EM 2016.
Gylfi í leik á EM 2016.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á næstu vikum verður haldið uppboð á treyjum úr safni Gunnleifs Gunnleifssonar, markvarðar Breiðabliks.

Allur ágóði af sölunni rennur til Píeta samtakana á Íslandi.

Treyjurnar koma víðsvegar að. Skiptitreyjur eftir leiki og gjafatreyjur frá vinum og félögum.

Landslið og félagslið, þekkt og óþekkt nöfn, frá Íran til Frakklands, Waregem til Man City, og margar fleiri.

Fótbolti.net mun í þessari og næstu viku bjóða upp þrjár treyjur en þær seljast allar í sitthvoru lagi. Fleiri treyjur verða á uppboði á næstunni.

Einnig verða treyjur sem ekki fara á uppboð á Fótbolti.net, til sölu á slá í Jóa Útherja.

Treyjurnar á uppboðinu verða til sýnis á SportogGrill í Smáralind.

Treyjurnar sem Fótbolti.net býður upp eru
Treyja Gylfa Þórs Sigurðssonar úr leik á EM - Hæsta boð 50 þús.
Treyja Raul Meireles úr Portúgals og Íslands
Treyja Joe Hart úr leik Cardiff og Manchester City

Bjóddu í treyju með því að senda á [email protected]

Lágmarksboð er 15 þúsund krónur.

Uppboðið stendur yfir til 12:00 föstudaginn 29. nóvember.
Athugasemdir
banner
banner