Fotbolti.net
20.01.23 - 13:34
Elvar Geir Magnússon

Ingó Sig verður ekki með Víði í sumar

Ingólfur Sigurðsson var hjá KV.

Ingólfur Sigurðsson var hjá KV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í byrjun árs var tilkynnt að Ingólfur Sigurðsson væri genginn í raðir Víðis í Garði sem leikur í 3. deild karla. Vegna breyttra aðstæðna hjá Ingólfi er þó ljóst að hann getur ekki leikið með liðinu.
„Ingólfur Sigurðsson mun ekki leika með Víði Garði í sumar vegna breyttra fjölskylduaðstæðna. Ingólfur getur því ekki skuldbundið sig í verkefnið af fullum krafti.

Málið var unnið í miklu bróðerni á milli félagsins og leikmanns.

Við óskum Ingólfi góðs gengis í komandi verkefnum,"
segir í tilkynningu Víðis.

Ingólfur hefur leikið 233 leiki í meistaraflokki og skorað 54 mörk. Síðustu þrjú ár hefur hann spilað með KV. Hann hefur á ferlinum leikið með liðum á borð við KR og Val í efstu deild en hann æfir þessa dagana með Valsmönnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.