Ethan Ampadu vonast til að komast inn í lið Chelsea á næsta tímabili eftir lánsdvöl hja RB Leipzig í Þýskalandi.
Hinn 19 ára gamli Ampadu fékk lítið að spila framan af á tímabilinu en hann var í byrjunarliðinu gegn Tottenham í gær.
Hinn 19 ára gamli Ampadu fékk lítið að spila framan af á tímabilinu en hann var í byrjunarliðinu gegn Tottenham í gær.
„Ég er alltaf að horfa á Chelsea og sjá hvað er í gangi. Það er gott að sjá ungu leikmennina slá í gegn í augnablikinu," sagði Ampadu.
„Þeir eru í topp fjórum svo við krossleggjum fingur og vonum að þeir geti haldið því."
„Ég vil koma til baka (til Chelsea) og ég stefni á það en núna er einbeiting mín á Leipzig út tímabilið."
Athugasemdir